Jónsi
Myndir
Ýmsir tenglar
02.10.2011 13:50:25 / jonsig

Spilað á Núpi

Við hjónin fórum ásamt Guðrúnu Sigþórs að spila víkingatónlist og spiluðum einnig á Langspil og fiðlu. Tekin voru nokkur lög á þau hljóðfæri og önnur vikinga hljóðfæri sem við höfðum með. Þar var leikið af fingrum fram einnig og var Skúli Gauta þar fremstrur í flokki.


  


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2011 11:51:34 / jonsig

Hljómsveitin mín.

Ég er í hljómsveit sem er skipuð meðlimum frá Bolungarvík Súðavík og Þingeyri. Við komum í fyrsta skiptið fram á bláberjahátíð í Súðavík á fostudagskvöldið og þar strax á eftir í kjallaranum í Einarshúsi í Bolungarvík.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2011 21:53:31 / jonsig

Spilað í Heydal

Við hjónin ásamt vinkonu okkar spiluðum í Heydal í Ísafjarðardjúpi um síðustu helgi þar sem haldinn var Djúpdagurinn í fyrsta sinn og verður væntanlega fastur liður að ári. Dagurinn á að vera í miðaldar stíl með viðeigandi mat skemmtun dansi og hljóðfæraleik. Fórum við af stað með þjóðlaga hljóðfærin sem ég hef verið að smíða og spiluðum undir danskennslu, en kenndur voru vikivakar og ýmis spor frá forni tíð.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2011 00:25:07 / jonsig

Nýsmíði Kantele.

Þetta hljóðfæri heitir Kantele og er finnst að uppruna og er frá seinni hluta 17. aldar.
Þetta hljóðfæri er með 5 strengi en eru oft með upp í 15 strengi. Hljóðfærið er mikið notað í Eistlandi einnig og er kallað Small Kannel þar í landi.



» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2011 21:03:51 / jonsig

Hljóðfærasafnið opið.

Hljóðfærasafnið opið alla daga fram á kvöld og þegar smiðurinn er heima er alltaf hægt að banka uppá og kíkja á safnið og smiðjuna, sjá jafnvel hvernig hljóðfæri verður til.




» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2011 13:08:05 / jonsig

Jón og Rakel spiluðu á Langspil og fiðlu.

Jón og Rakel spiluðu á Langspil og fiðlu fyrir handverksópa af norðurlöndum sem staddir eru á Þingeyri á Norrænum handverks dögum.





» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2011 21:13:59 / jonsig

Vaðlabandið

Vorum að spila í hljómsveitinni sem var kölluð vaðlabandið, ég og Agnes fósturdóttir mín erum í bandinu, Agnes söngkona til vinstri og bassinn ég. Við spiluðum líka á jólahlaðborðum á Núpi sem voru 3 talsins með um 170-190 manns hvort skiptið. spiluðum svo á Silvurtorgi á Ísafirði á þorláksmessu. Spiluðum svo nú í lokin fyrir Brinjólf á Vöðlum í veislu er var tileinkuð honum, svaka gott band.



» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 14617